11.03.1935
Neðri deild: 25. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í C-deild Alþingistíðinda. (3525)

55. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.

Forseti (JörB):

Hv. þdm. vita það vel, að það er ekki í valdi forseta að toga atkv. út úr þm., ef þeir neita að greiða atkv. Hann á ekki annars úrkosta en að beita þingvítum - svipta þá dagkaupi -, en ég geng út frá því sem sjálfsögðu, að hv. þm. uppfylli skyldur sínar.