01.11.1935
Neðri deild: 62. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í C-deild Alþingistíðinda. (3627)

151. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég vil þakka hv. þm. G.-K. fyrir góðar undirtektir undir þetta mál. Hinsvegar er það ekki rétt, sem mér skildist hann segja, að stjórnarfl. hefðu í þessu efni aðhyllzt ósk eða till. Sjálfstfl. í þessu efni.

Ég er ekki vanur að skýra frá því, sem gerist í nefndum, og mun ekki heldur gera það nú, en mér skilst, að það frv., sem liggur fyrir sjútvn. frá hv. sjálfstæðismönnum, sé allt annars efnis en stjórnarfl. geta gert sig ánægða með.