01.11.1935
Neðri deild: 62. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í C-deild Alþingistíðinda. (3632)

151. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það eru aðeins örfá orð út af því, í hvaða n. þetta mál fer. Frv. um afnám útflutningsgjalds af landbúnaðarafurðum hefir verið afgr. frá fjhn. En hvað viðvíkur því, að hér hafi á þessu þingi verið vísað hliðstæðum málum til sjútvn., þar sem er frv. um útflutningsgjald af beinum, þá er það ekki hliðstætt, því að það útflutningsgjald var ekki lagt á sem tekjuöflun, heldur sem verndartollur, og þess vegna snertir það frekar sjútvn. Finnst mér því eðlilegt, að þessu máli verði vísað til fjhn., en geri það þó ekki að neinu kappsmáli.