08.03.1935
Neðri deild: 23. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 419 í C-deild Alþingistíðinda. (3858)

48. mál, fyrning verslunarskulda

Bjarni Ásgeirsson:

Ég verð að segja það, að mér finnst það ekki ná neinni átt að vísa frv. þessu til landbn., þó að það snerti að einhverju leyti bændur, því það varðar menn bæði til sjávar og sveita og á því ekki heima þar frekar en ýms önnur mál, er snerta allar stéttir yfirleitt. Skilst mér, að mál þetta eigi að fara í þessa allsherjar ruslakistu þingsins, sem er allshn.