26.03.1935
Efri deild: 35. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 680 í B-deild Alþingistíðinda. (981)

27. mál, trjáplöntur og trjáfræ

Frsm. (Jón Baldvinsson):

Það er ekki annað að segja frá landbn. en það, að hún mælir einróma með því, að frv. þetta verði samþ. Gerir hún ekki við það neinar brtt., og sé ég því ekki ástæðu til að fara um það fleiri orðum, en mæli aðeins með því, að frv. verði samþ.