30.11.1937
Efri deild: 39. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 341 í B-deild Alþingistíðinda. (379)

99. mál, stimpilgjald

Magnús Jónsson:

Ég vil aðeins geta þess, af því að ég var ekki staddur á fundinum, þegar þetta mál var afgr., að ég er sammála hinum nm. um það, að þetta frv. beri að samþ. — Hitt atriðið, hvort brtt. n. verður samþ. eða ekki, finnst mér aukaatriði. Ég hefði getað verið með málinu óbreyttu eins og það lá fyrir, en sé hinsvegar ekkert á móti því, að þetta tímatakmark verði sett.