11.12.1937
Efri deild: 47. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í B-deild Alþingistíðinda. (461)

97. mál, skatta- og tollaviðauki 1938

Frsm. (Bernharð Stefánsson) :

Þetta frv. er komið frá hv. Nd. Fjhn. hefir athugað það, og eins og nál. hennar á þskj. 306 ber með sér, leggur hún til, að það verði samþ. óbreytt. Hún lítur svo á, að ríkissjóður megi ekki við því að missa þær tekjur, sem honum eru ætlaðar samkv. þessu frv. og hann hefir notið á undanförnum árum. Einn nm., hv. 1. þm. Reykv., skrifaði að vísu undir nál. með fyrirvara, ekki að ég hygg af því, að hann mundi ekki fylgja frv., heldur mun hann vilja gera sérstaka grein fyrir atkvæði sínu.