05.05.1938
Efri deild: 63. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 723 í B-deild Alþingistíðinda. (1042)

136. mál, gerðardómur í farmannakaupdeilu

*Magnús Jónsson:

Þó að það sé ekki venja, þegar hraða á málum, að vísa þeim til n., vil ég gera það að till. minni. að þessu máli verði vísað til allshn., því að flestir þm. hafa ekki séð frv. fyrr en því var útbýtt. Það þarf ekki að taka nema stutta stund að líta yfir það. Ég legg ekki neina sérstaka áherzlu á þetta, því að ríkisstj. ber ábyrgð á frv., en mér þætti viðkunnanlegra, að því yrði vísað til n.