09.04.1938
Neðri deild: 45. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1042 í B-deild Alþingistíðinda. (1460)

32. mál, lífeyrissjóður ljósmæðra

*Frsm. (Finnur Jónsson):

Fjhn. hefir haft þetta mál til meðferðar og hefir lagt til, að á því verði gerðar lítilsháttar breytingar. Hafa þær brtt. verið orðaðar í samráði við flm. frv. og eru að öðru leyti gerðar í samráði við forstjóra tryggingarstofnunar ríkisins. Ég leyfi mér f. h. n. að mæla með því, að þær nái fram að ganga.