20.04.1938
Neðri deild: 50. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 308 í B-deild Alþingistíðinda. (209)

4. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Frsm. (Sveinbjörn Högnason):

Eins og nál. ber með sér, leggur fjhn. til, að frv. verði samþ. óbreytt við þessa umr., en hinsvegar vill n. útvega sér upplýsingar um nokkur atriði, sem hún hefir gert ráðstafanir til að fá fyrir 3. umr. Þess vegna hafa nefndarmenn áskilið sér rétt til þess að koma með brtt. við frv. við þá umr., en hinsvegar vill n. ekki tefja fyrir því, að málið haldi áfram, og afgreiðir það því með þessu móti nú við þessa umr.