28.04.1938
Neðri deild: 56. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í C-deild Alþingistíðinda. (2622)

120. mál, útvarpsráð

Jakob Möller:

Mér skilst, að ef á að fara að vísa þessu máli til menntmn., þá sé það vantraust á allshn., sem hefir borið frv. fram. Mér finnst það vera miklu nær að beina þeim tilmælum til allshn., að hún taki málið til nánari athugunar, og legg ég til, að það verði gert.