01.04.1938
Efri deild: 38. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í C-deild Alþingistíðinda. (2689)

85. mál, skrifstofufé sýslumanna og bæjarfógeta o. fl.

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Frv. þetta barst allshn. fyrir skömmu frá hæstv. forsrh. með tilmælum um, að n. flytti það, þar sem l. um skrifstofufé sýslumanna og bæjarfógeta féllu úr gildi 1. jan. þ. á. Þótti n. rétt að verða við þessum tilmælum, en hinsvegar hefir hún ekki enn athugað einstaka liði 1. gr. frv. og áskilur sér því rétt til að koma fram með brtt. Ég geri ráð fyrir, að n. taki frv. til rækilegrar athugunar milli 1. og 2. umr., og vil ég því mælast til þess við hæstv. forseta, að hann taki ekki málið á dagskrá til 2. umr. fyrr en n. hefir athugað það.