30.11.1939
Neðri deild: 72. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 848 í B-deild Alþingistíðinda. (1671)

27. mál, íþróttalög

1) GSv:

Eins og nál. ber með sér, er menntmn. klofin í málinu, þannig að 4 nm. vilja löggjöf um málið og meiri hl. þeirra vill vafalaust, að þetta frv. verði að l. Ég er þeirrar skoðunar, að það hefði mátt bíða að setja löggjöf um sum þessi atriði, sem í frv. eru, en er annars hlynntur skynsamlegri löggjöf um þessi efni. Ég vil þess vegna, a. m. k. að svo stöddu, ekki vísa málinu frá og segi því nei.