13.12.1939
Neðri deild: 82. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (1759)

155. mál, friðun Eldeyjar

*Flm. (Sigurður Kristjánsson):

Við það, sem segir í grg., vil ég bæta því einu, að frv. er samið og flutt fyrir tilmæli Dýraverndunarfélags Íslands. Þótt margt mætti segja um þetta mál umfram það, sem segir í grg., tel ég þess ekki þörf. Mér skilst, að málið sé vinsælt hér í hv. d., sökum þess, að ég hefi ekki orðið var við, að nokkur hefði nokkuð við flutning þess að athuga. En nú er liðið að þinglokum, og mælist ég því til þess, að málið fái að ganga til 2. umr., án þess að þurfa að fara til n.