25.04.1939
Efri deild: 49. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í C-deild Alþingistíðinda. (2734)

14. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

Forseti (EÁrna):

Ég vil vekja athygli á því, að ef frv. þessu verður breytt hér í d., þarf það að komast til Nd. eftir litla stund, og er því æskilegt, að ekki yrðu miklar umr., heldur verði atkvgr. látin skera úr um meðferð málsins.

Útbýtt er á fundinum brtt. 214. Ég vil leita afbrigða fyrir henni.