05.12.1939
Neðri deild: 75. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í C-deild Alþingistíðinda. (3006)

122. mál, verkstjórn í opinberri vinnu

Jón Ívarsson:

Herra forseti! Mér sýnist sem skoðanir séu nokkuð skiptar um þetta mál hér í hv. d., og virðist því undir tilviljun komið, hvað um frv. verður, ef það er nú látið ganga til atkvgr. Því datt mér í hug að stinga upp á því, að málinu yrði vísað til ríkisstj.