06.12.1939
Neðri deild: 76. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í D-deild Alþingistíðinda. (3589)

142. mál, ríkisreikningurinn 1937

*Forseti (JörB) :

Það er á valdi hv. þm., hvernig þm. haga þessum umr., því þeir hafa það frjálsræði, að þeir ráða, hvenær þeir kveðja sér hljóðs um hvert þingmál. En ég hélt, að hv. þm. vildu hafa það á sem einfaldastan hátt, og á þann veg, sem bezt ætti við.

Hv. þm. A.-Húnv. getur verið viss um það. að ég veiti honum orðið, ef hann kveður sér hljóðs.