20.02.1939
Neðri deild: 4. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í B-deild Alþingistíðinda. (65)

8. mál, námulög

*Héðinn Valdimarsson:

Það væri kannske hægt að ná í hæstv. forsrh. til þess að fá svör hans viðvíkjandi þeim fyrirspurnum, sem fram koma við þessa umr. um málið; því að það gæti haft nokkra þýðingu um það, hvaða brtt. kæmu fram við þetta frv.