05.04.1940
Sameinað þing: 14. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í D-deild Alþingistíðinda. (2456)

95. mál, lýðræðið og öryggi ríkisins

Árni Jónsson:

Ég ætla að fá að skjóta inn ofurlítilli afsökun út af ummælum hv. þm. Barð. Ég hefi átt nokkurn þátt í því, að ræða hv. þm. N.-Ísf. var birt í Vísi á dögunum, en það var ekki tekið nægilega skýrt fram, að ræðan var algerlega á hans ábyrgð að öllu leyti. Ég bið hv. þm. Barð. afsökunar og lýsi yfir því, að ég mun hlutast til um, að þessa verði getið í blaðinu.