17.04.1940
Neðri deild: 42. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í B-deild Alþingistíðinda. (364)

86. mál, ríkisreikningurinn 1938

*Steingrímur Steinþórsson:

Ég skal geta þess, að ég hefi ekki talið með sandgræðsluna og veiðimálanefndina. við höfum ekki talið þessa menn með, vegna þess að þeir eru ekki starfsmenn Búnaðarfélagsins, heldur ríkisins, og taka sín laun beint úr ríkissjóði. Ég get hinsvegar skilið það, að ef allur ferðakostnaðurinn er talinn með laununum, þá geti það hleypt þeim fram.