18.04.1941
Efri deild: 38. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 677 í B-deild Alþingistíðinda. (1368)

103. mál, stríðsgróðaskattur

Forseti (EÁrna) :

Næsti fundur er ákveðinn í kvöld, kl. 9, og verður þá þetta mál tekið til 3. umr., svo og frv. um breyt. á l. um tekjuskatt og eignarskatt, og enn fremur mál, sem nú er til meðferðar í hv. Nd. (frv. um leigu húsnæðis í sveitum og kauptúnum), ef sú deild verður þá búin að afgreiða það frá sér.