08.05.1941
Neðri deild: 54. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (1793)

127. mál, Vatnsleysa í Viðvíkursveit

Steingrímur Steinþórsson:

Ég vil þakka hv. allshn. fyrir fljóta og góða afgr. á þessu frv., og vil ég leyfa mér að vænta þess, að það mætti verða afgr. hér frá hv. d. sem allra fyrst, því að það er mikið áhugamál allra aðstandenda, að þetta mál geti orðið afgr. á því þingi, sem nú situr.