05.05.1941
Neðri deild: 51. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 855 í B-deild Alþingistíðinda. (2094)

110. mál, húsmæðrafræðsla í kaupstöðum

Finnur Jónsson:

Ég vildi leyfa mér, ásamt hv. 6. þm. Reykv., að leggja fram skrifl. brtt. við þetta frv., um það, að framlag ríkissjóðs til þessara skóla verði 3/4 í staðinn fyrir ½, og verður það þá til samræmis við það frv. um húsmæðrafræðslu í sveitum, sem nú er komið til þessarar d. frá hv. Ed.