05.06.1941
Efri deild: 72. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í B-deild Alþingistíðinda. (2576)

70. mál, Háskóli Íslands

Forseti (EÁrna) :

Þetta mun koma til af því, að ég var ekki viðstaddur, þegar dagskráin var ákveðin. Tvö fyrstu málin á dagskrá taka nú ekki langan tíma, því að um þau verða engar umræður, en þriðja málið er stjórnarfrv., og hefur hæstv. forsrh. óskað þess, að það mál yrði tekið fyrir sem fyrst. Annars geri ég ráð fyrir, að háskólafrv. komi til umr. í dag hér í hv. d., því að ég vona, að ekki verði miklar umr. um áfengislagafrv.