16.06.1941
Efri deild: 81. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1027 í B-deild Alþingistíðinda. (2602)

70. mál, Háskóli Íslands

Brynjólfur Bjarnason:

Þar sem háskólaráð hefur á fundi sínum 11. júní samþ. eftirfarandi ályktun :

„Háskólaráð lýsir því yfir, að enda þótt fari svo, að frv. það til breyt. á háskólalögunum, sem nú liggur fyrir Alþingi, verði að lögum, þá skuli heimildin til þess að takmarka aðgang stúdenta að háskólanum ekki verða notuð næsta háskólaár,“ og þar sem ég hef nokkra ástæðu til að vona, að þessi takmörkun verði numin úr 1. á næsta . þingi, þá segi ég já.