07.05.1941
Neðri deild: 53. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í C-deild Alþingistíðinda. (3168)

72. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Jón Ívarsson:

Eins og kunnugt er, er hv. frsm. 1. minni hluta ekki viðstaddur sökum veikinda. En þar sem hann er ekki við, verður ekki um framsögu að ræða af hálfu nefndarhlutans. Ég vil mælast til þess, að frv. fái að ganga til 3. umr. án umræðna að þessu sinni. Mér er kunnugt um, að flm. brtt. á þskj. 372 er fús til að taka hana aftur til 3. umr., ef samkomulag gæti orðið um að láta umr. bíða þangað til.