16.05.1941
Neðri deild: 61. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í C-deild Alþingistíðinda. (3198)

72. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Forseti (GSv) :

Mér hefur verið afhent skrifl. brtt. frá hv. þm. Barð., svo hljóðandi:

„Við 1. gr. Í stað orðanna „frá 1. janúar til 1. júní og frá 1. sept. til 31. desember“ komi: frá 1. janúar til 1. júlí og frá 1. til 31. desember.“

Þessi brtt. er of seint fram komin og þar að auki skrifl. Þarf því tvenns konar afbrigði til Þess að hún megi komast hér að.