28.04.1941
Sameinað þing: 9. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í D-deild Alþingistíðinda. (3465)

59. mál, efni til skipasmíða og smíðastöð

*Árni Jónsson:

Vegna þess að formaður allshn. sameinaðs þings er ekki viðstaddur, þá vil ég víkja að þeirri fyrirspurn, sem hv. 5. þm. Reykv. gerði út af þáltill. N. hefur ekki afgr. hana enn þá. Hún hefur aðeins afgr. 3 mál. Það voru aðeins 10 mínútur eftir af fundi, þegar þetta var tekið fyrir, og ég geri ráð fyrir, að hv. 5. þm. Reykv. sé mér sammála um, að það verður ekki afgr. á þeim tíma. Og afgreiðsla mála er tekin eftir röð.