18.04.1941
Neðri deild: 39. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í B-deild Alþingistíðinda. (444)

75. mál, leigutaka á húsnæði í sveitum og kauptúnum o.fl.

Forseti (JörB) :

Hv. flm. brtt. hafa fallizt á að taka brtt. sína aftur til 3. umr. Ég mun þá hafa 3. umr. um málið á fundi, sem settur verður kl. 9 í kvöld. Hv. Ed. mun ætla sér að hafa fund á morgun og getur þá tekið málið fyrir. Það þarf því ekki að valda neinni verulegri töf, og vona ég, að það geti ekki orðið til neins skaða fyrir málið, þó að afgreiðslu þess sé hagað eins og ég hef lýst.