14.05.1941
Efri deild: 60. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í B-deild Alþingistíðinda. (656)
61. mál, gjaldeyrisvarasjóður og eftirlit með erlendum lántökum
Viðskmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Ég vil þakka hv. fjhn. afgreiðslu málsins og taka fram um leið, að ég lít svo á sem fram kemur í nál. á þskj. 458, að telja beri, að ákvæði 5. gr. eigi við hæstu innlánsvexti á sparifjárreikningum bankanna á hverjum tíma, og virðist því óþarft að flytja brtt. um það.
Síðara atriðið sýnist mér ekki geta valdið neinum erfiðleikum.