24.05.1941
Neðri deild: 66. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 427 í B-deild Alþingistíðinda. (868)

7. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Forseti (JörB) :

Þar sem tilætlun mun vera sú, að þetta mál gangi fram, en á því er mikil nauðsyn, og þar sem nú líður að þinglokum, sé ég mér ekki fært að fresta málinu fram yfir helgi. Ef menn hafa við höndina till. á þskj. 525 og 620, vona ég, að þeir geri sér ljósa þá efnisbreytingu og röskun, sem síðari till. hefur í för með sér.