08.10.1943
Neðri deild: 29. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 292 í C-deild Alþingistíðinda. (2291)

16. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Jón Pálmason) :

Herra forseti. Þetta frv. er staðfesting á brbl. frá hæstv. ríkisstj. og breytir aðeins frestum og tímaákvörðunum snertandi tekjuskattslögin. Stafar það af því, hve breyt. á þeim l. í vor var seint á ferðinni. Fjhn. er því einróma samþykk, að frv. nái fram að ganga.