14.10.1943
Efri deild: 34. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í C-deild Alþingistíðinda. (2943)

3. mál, eignaraukaskattur

Haraldur Guðmundsson.:

Ég vil aðeins út af ummælum hv. 6. þm. Reykv. benda honum á það, að það er engin hætta á því, að málið verði knúið fram, áður en upplýsingarnar liggja fyrir, ekki einu sinni í þessari hv. d. Málið þarf að ganga í gegnum umr. í þessari d. og fara til n. Hér er aðeins um það að ræða, hversu lengi eigi að draga að ljúka 1. umr. málsins.