12.12.1944
Neðri deild: 90. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 788 í B-deild Alþingistíðinda. (1161)

141. mál, kaup eigna setuliðsins

Jakob Möller:

Ég hef frá upphafi verið því mótfallinn, að ríkið stofni sér í þá fjárhagslegu hættu að kaupa eignir setuliðsins. Eins og meðferð þessa máls er nú háttað ber þingið alla ábyrgðina, en fjarri mun fara, að vel horfi með sölu þessara eigna, og því lengra sem líður, því verðminni verða þær.