24.01.1944
Efri deild: 5. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í C-deild Alþingistíðinda. (2307)

14. mál, eignaraukaskattur

Flm. (Haraldur Guðmundsson):

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að tala langt mál um frv. að þessu sinni, þar sem ekki er nema einn mánuður, síðan frv. var afgr. út úr þessari hv. d., og vísa ég til þess, sem ég sagði þá. Frv. er flutt hér óbreytt frá því, sem var á síðasta þ., og leyfi ég mér að leggja til, að því verði vísað til hv. fjhn.