27.11.1944
Efri deild: 77. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 345 í C-deild Alþingistíðinda. (3164)

140. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm:

(Bernharð Stefánsson): Þetta frv. er aðeins staðfesting á bráðabirgðalögum, sem út voru gefin 26. apríl þetta ár, um framlenging á frestum þeim, sem ræðir um í 14. kafla l. nr. 6 frá 9. jan. 1935. Það er búið að framkvæma þessi bráðabirgðal., því að skattar ársins í ár hafa verið lagðir á samkv. þeim og þessir frestir voru framlengdir samkv. þeim. L. eru því búin að missa sína þýðingu, og það er formið eitt að bera þetta nú undir Alþ. til staðfestingar.

Fjhn. mælir með því, að þessu formi verði fullnægt og frv. samþykkt.