17.02.1944
Sameinað þing: 17. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í D-deild Alþingistíðinda. (3962)

36. mál, veðurfregnir

Flm. (Pétur Ottesen):

Ég legg það á vald Alþ., hvort það vísar till. til n. eða ekki. Ég efast ekki um, að hæstv. ríkisstj. mun flytja þau rök, sem til eru í þessu máli, og till. er þannig orðuð, að ekki er hægt að misskilja orðalagið. Ég legg sem sagt enga megináherzlu á, hvort till. fer í n. eða ekki. Ég hygg, að þess sé ekki þörf. En ég legg áherzlu á það, að Alþ. afgreiði þetta mál nú og einmitt í tilefni af því, sem nú hefur verið að gerast og hægt er að benda á til rökstuðnings málinu.