17.02.1944
Sameinað þing: 17. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í D-deild Alþingistíðinda. (4355)

32. mál, úrkomumælingar á hálendi Íslands

Flm. (Sigurður Thoroddsen):

Herra forseti. Ég flyt hér á þskj. 39 till. ásamt þremur öðrum þm.

Ég ætla ekki að fjölyrða um þetta mál, en læt nægja að vísa til grg., sem er allýtarleg. Þó skal ég geta þess, að þessi till. lá fyrir raforkun., og var þar samþ., að hún yrði flutt hér á Alþ. Vildi ég mælast til þess við fjvn., að hún sæi sér fært að stuðla að framkvæmdum í þessu máli sem fyrst.