22.02.1945
Neðri deild: 135. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1656 í B-deild Alþingistíðinda. (4590)

256. mál, gjald af söluverði fisks erlendis

Pétur Ottesen:

Ég tók aftur í gær brtt. við þetta frv. á þskj. 1169, og ég gerði það eftir ósk frá hv. frsm. fjhn. Nú geri ég ráð fyrir, að n. hafi athugað þessar brtt., og hefði ég búizt við því að heyra frá n. um þá niðurstöðu, sem hlotizt hefði af þeirri athugun. Hv. frsm. hefur ekki kvatt sér hljóðs enn þá, en gerir það sjálfsagt síðar. Ég vil aðeins taka það fram, að ég hef flutt hér brtt. við þessar brtt. mínar, sem leiðir af því, að frv. var nokkuð breytt hér í hv. d. í gær. Og varð sú breyt. þess valdandi, að breyta þurfti nokkuð orðalagi í síðari brtt. minni. Ég hef nú flutt þessar brtt. hér í heild og hef umsamið síðari brtt. þannig, að sú brtt. geti fallið inn í frv. eins og það er orðað nú, og ég tek þess vegna brtt. á þskj. 1169 aftur. og þessar koma þá í þeirra stað.

Mér þykir ekki ástæða til þess að fjölyrða frekar um þetta mál. Ég skírskota til þeirra raka, sem færð voru hér fram í gær fyrir þessum brtt., um leið og ég nú legg fram þessar brtt. á ný með dálítilli breyt., sem gerð er með tilliti til þess, að frv. var breytt í gær.