01.03.1945
Neðri deild: 141. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1963 í B-deild Alþingistíðinda. (5093)

254. mál, fasteignamat

Pétur Ottesen:

Ég vil leggja fram brtt. við þá till., sem nú var útbýtt hér í d. viðvíkjandi kostnaði við aukamat.

Ríkissjóður hefur hingað til greitt þennan kostnað, enda hans hagur. — Reyndar mun það vera svo í bæjum, að þar er lagður á skattur, sem er hliðstæður, en tekjur af þessu eru engar fyrir sveitarfélögin. Þess vegna er ekki rétt, að þau beri þennan kostnað.

Ég vil leyfa mér að bera fram um þetta skriflega brtt. og afhendi hana hér með hæstv. forseta.