15.01.1945
Sameinað þing: 83. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 907 í D-deild Alþingistíðinda. (6204)

226. mál, lendingarbætur í Flatey á Skjálfanda

Flm. (Jónas Jónsson):

Það er að vísu rétt hjá hv. þm., að það gæti verið eðlilegra að fara aðra leið í þessum efnum, en þó er þetta sérstætt, þar sem ríkið er eigandi eyjarinnar. En það, að ég fór þessa leið, var sökum þess, að Flateyingar ætla að vinna að þessu í sumar, en það væri útilokað, ef svo væri, að farið væri að eins og venja er til.