02.09.1944
Sameinað þing: 37. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2057 í B-deild Alþingistíðinda. (6412)

Setning þings af nýju

forsrh. (Björn Þórðarson):

Herra forseti. — Ég hef hér í höndum bréf forseta Íslands svo hljóðandi:

„Forseti Íslands gerir kunnugt: Ég hef ákveðið, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda laugardaginn 2. sept. 1944, kl. 13.30.

Ritað í Reykjavík, 17. ág. 1944. Sveinn Björnsson.

Björn Þórðarson.“ Samkvæmt þessu verður nú fundum Alþingis fram haldið, og býð ég alla hv. þm. velkomna til starfa.