08.12.1945
Sameinað þing: 14. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í B-deild Alþingistíðinda. (307)

16. mál, fjárlög 1946

Frsm. (Gísli Jónsson) :

Ég vil aðeins leyfa mér að óska eftir því, að umr. verði ekki slitið. Hæstv. forseti veit vel, að ég hef setið hér í allan dag til að taka niður aths. frá þm., og mér hefur ekki verið tilkynnt, að enginn væri á mælendaskrá. Hæstv. forseti getur ekki ætlazt til þess, að ég taki til máls á eftir hverjum ræðumanni. Mér er kunnugt, að hv. 3. landsk. vill fá skýringu varðandi fyrirspurn, sem hann hefur gert. Ég mótmæli því, að þessari umr. sé lokið.