24.04.1946
Neðri deild: 118. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 296 í C-deild Alþingistíðinda. (4961)

33. mál, jarðræktarlög

Eysteinn Jónsson:

Ég fór þess á leit við hæstv. forseta fyrir nokkrum dögum, að hann tæki á dagskrá frv. til l. um breyt, á jarðræktarlögunum. Ég vil nú enn ítreka þetta. Minni hl. landbn. hefur fyrir löngu skilað áliti um þetta mál, enda er það með elztu málum þingsins. Ég vil nú enn biðja hæstv. forseta að taka málið á dagskrá á næsta fundi.