28.03.1946
Sameinað þing: 35. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 518 í D-deild Alþingistíðinda. (5321)

208. mál, björgunarskúta Vestfjarða

Flm. (Sigurður Bjarnason):

Ég skal ekki tefja þessar umr. frekar, en vil aðeins benda hv. þm. Barð. á, að í 1. gr. samningsins eru ákvæði um gerð skipsins.

Ég vil svo minnast á það viðvíkjandi því, sem hæstv. ráðh. sagði áðan, að ég fékk leyfi hjá honum til að birta þennan samning.