11.03.1946
Neðri deild: 84. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í D-deild Alþingistíðinda. (5428)

131. mál, varðbátakaup

Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson) :

Herra forseti. Ég held, að ég hafi svarað því, að verið væri að athuga, hvað gera ætti við hraðbátana, og mannskapurinn hefði verið afmunstraður af tveimur þeirra, en ég bið afsökunar á því, ef þetta hefur ekki verið nógu skýrt hjá mér.