17.05.1947
Neðri deild: 130. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1022 í B-deild Alþingistíðinda. (1047)
239. mál, þjóðleikhús
Forseti (GÞ) :
Þessi fundur var boðaður á venjulegan hátt og auk þess tilkynntur á fundi í gærkvöld. Þá hefur hæstv. forsrh. óskað þess, að afgreiðslu mála verði lokið svo fljótt sem kostur er.