14.01.1947
Efri deild: 50. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1306 í B-deild Alþingistíðinda. (1511)

34. mál, sala verzlunarlóðarinnar á Sauðárkróki

Frsm. (Ásmundur Sigurðsson) :

Herra forseti. Ég verð að segja það, að mér finnst þessar aths. hv.

1. þm. N-M, nokkuð seint fram komnar. Hins vegar skal ég fyrir mitt leyti ekkert hafa á móti því, að málinu verði frestað um stundarsakir, og ég býst ekki við, að hv. nm. séu því andvígir, því að ekki er séð, að málið bíði við það nokkurt tjón.