27.11.1946
Efri deild: 21. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1579 í B-deild Alþingistíðinda. (2344)

48. mál, innlend endurtrygging, stríðsslysatrygging skipshafna o. fl.

Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég mun ekki ræða þetta frekar, en ég vildi benda á, að þekking hv. þm. er eitthvað gloppótt. Hann rengdi, að ég færi með réttar tölur og fór sjálfur með tölur frá framkvæmdastjóranum, en ég hef aðrar tölur frá honum, og þær, hygg ég, að séu réttari, og þær eru hér skrifaðar.

Hitt, sem hv. þm. sagði, var uppi í skýjunum.