20.12.1946
Neðri deild: 43. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1904 í B-deild Alþingistíðinda. (3436)

120. mál, skattgreiðsla Eimskipafélags Íslands

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég vil beina því til hæstv. forseta, að mér hefði fundizt vel við eiga, að þessu máli verði frestað. Það er að vísu komið frá meiri hl. n., en ekkert nál. hefur komið frá minni hl., og er því ekki eðlilegt að afgreiða það, fyrr en það er komið fram.